Opin gögn Veðurstofu Íslands eru, nema annað sé sérstaklega tekið fram, gefin út samkvæmt Creative Commons afnotaleyfi, CC BY 4.0 (Attribution 4.0 International Public License), í samræmi við lög nr. 45/2018 um endurnot opinberra upplýsinga.
Þegar opin gögn Veðurstofu Íslands eru notuð undir þessu leyfi skal ávallt tilgreina uppruna upplýsinganna (Veðurstofa Íslands), heiti gagnasetts og leyfisskilmála.
Skýrt skal koma fram hver ber ábyrgð á vinnslu upplýsinganna þegar þær eru gerðar öðrum aðgengilegar.
Dæmi um tilvísun: [Heiti gagnasetts] frá Veðurstofu Íslands. Gefið út samkvæmt CC BY 4.0.
Ef gögnunum er breytt skal bæta við: Gögnunum hefur verið breytt af [nafn notanda]. Veðurstofa Íslands ber ekki ábyrgð á þeirri vinnslu eða túlkun.
Veðurstofa Íslands ber enga ábyrgð á því hvort gögn stofnunarinnar henta til þeirra nota sem notandi ætlast til. Veðurstofa Íslands ábyrgist ekki að þau gögn sem finna má á vefsíðum/þjónum hennar séu ætíð aðgengileg og uppfærð og áskilur sér rétt til að loka aðgangi að gögnum án fyrirvara.
Notanda er ljóst að gæði gagnanna eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað varðar nákvæmni og áreiðanleika. Stofnunin ber ekki ábyrgð á afleiðingum sem kunna að hljótast af því. Notandi ber sjálfur ábyrgð á notkun, túlkun og úrvinnslu gagnanna.
Veðurstofan ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun gagna eða afleiddra gagna nema að því marki sem kynni að falla undir lög nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Að öðru leyti undanþiggur Veðurstofan sig ábyrgð á tjóni að því marki sem lög leyfa.